Viðskipti

Græðum meira en aðrir á Airbnb

Snærós Sindradóttir skrifar
Um 75 prósent allra Airbnb íbúða í Reykjavík eru staddar í miðbæ, hlíðum og vesturbæ.
Um 75 prósent allra Airbnb íbúða í Reykjavík eru staddar í miðbæ, hlíðum og vesturbæ. Vísir/Eyþór
Íslenskir gestgjafar græða meira á Airbnb en kollegar þeirra í öðrum löndum eða að meðaltali 16.500 dollara, sem jafngildir 1,6 milljón króna, á ári á hverja íbúð í miðbænum. Heildartekjur reykvískra gestgjafa voru 5,3 milljarðar króna á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tölum frá dr. Jeroen A. Oskam sem rannskað hefur framtíðarþróun í ferðaþjónustu og stýrir Framtíðarstofnun ferðaþjónustunnar við Stendan-háskóla í Hollandi. Oskam heldur erindi um áhrif Airbnb á fundi á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar á þriðjudag.



Samkvæmt upplýsingum Oskam græða íslenskir Airbnb-gestgjafar að meðaltali um 3.500 Bandaríkjadölum meira á ári en næst gróðahæstu gestgjafar heims, í Westminst­er-hverfinu í London. Gestgjafar í Barcelona, sem hefur notið gríðarlega mikils ferðamannastraums um margra ára bil, græða um 8.600 dollara á ári, tæplega helmingi minna en íslenskir gestgjafar.

„Það sem kemur mest á óvart varðandi Reykjavík er að miðað við hvað þetta er lítil borg þá er hlutfall gesta sem nota Airbnb í engu samræmi við aðrar borgir. Árið 2015 var 1,1 milljón Airbnb-gesta í Amsterdam en á sama tíma voru Airbnb-gestir um 200 þúsund í Reykjavík. Reykjavík er einn sjötti af stærð Amsterdam,“ segir Oskam.

Aukningin á milli ára var gríðarleg, en samkvæmt Oskam nýttu 380 þúsund manns sér Airbnb-gistingu í Reykjavík á síðasta ári. Um 75 prósent allra Airbnb-íbúða í Reykjavík eru í Miðbæ, Vesturbæ og Hlíðum.



„Þetta hefur neikvæð áhrif á húsnæðismarkaðinn. Húsnæðisverð hækkar því leigjendur eru í beinni samkeppni við ferðamannastrauminn.“



Smæð Reykjavíkur reynist erfið til að finna raunhæfan samanburð við aðrar evrópskar borgir en sem dæmi má nefna að miðbær  Rotterdam, með 616 þúsund íbúa, og Haag, með 510 þúsund íbúa, hafa síðustu ár verið með meira en helmingi færri gesti í Airbnb-gistingu en Reykjavík. Yfir 5.000 íbúðir eru til útleigu á Airbnb í Reykjavík en yfir helmingur, 51,3 prósent, þeirra sem standa í útleigu bjóða fleiri en eina íbúð til leigu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×