Innlent

Sumaráætlun Strætó tekur gildi

Atli Ísleifsson skrifar
Sumarið er komið hjá Strætó.
Sumarið er komið hjá Strætó. Vísir/Ernir
Sumaráætlun Strætó hefur tekið gildi en í henni felst að í sumar verður ekið með hálftíma tíðni á tíu leiðum, í stað þess að aka á korters fresti á þeim leiðum á annatímum.

Í tilkynningu frá Strætó segir að tíðnin verði óbreytt á öðrum leiðum.

Þá verða tvær ferðir farnar á dag á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði í stað einnar ferðar eins og verið hefur.

Sjá má samantekt yfir allar breytingar á leiðakerfi á heimasíðu Strætó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×