Lífið

Sverrir Bergmann og Frikki Dór með sumarlega ábreiðu á lagi The Bee Gees

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vel gert hjá þessum félögum.
Vel gert hjá þessum félögum.
Sverrir Bergmann og hljómsveitin Albatross munu á næstu vikum frumflytja ábreiður á þekktum lögum í útvarpsþættinum FM95BLÖ á FM957.

Núna á föstudaginn fengu þeir aðstoð frá Frikka Dór þegar þeir tóku fallega ábreiðu af laginu Nights On Broadway með The Bee Gees.

Lagið var íslenskað á sínum tíma og ber nafnið Kvöldin í bænum. Upptakan fór fram í Hlégarði í Mosfellsbæ.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst hjá þessum snillingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×