Golf

Tiger gripinn ölvaður undir stýri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessi mynd var tekin af Tiger í fangelsinu í nótt.
Þessi mynd var tekin af Tiger í fangelsinu í nótt.
Vandræðunum í lífi Tiger Woods virðist ekki vera lokið en hann var handtekinn í nótt. Hann var þá ölvaður undir stýri.

Hann var handtekinn í Jupiter í Flórída klukkan þrjú í nótt að staðartíma og var síðan kærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum í morgun.

Kylfingurinn er nýkominn úr sinni fjórðu bakaðgerð og sagði á dögunum að sér hefði ekki liðið svona vel lengi.

Fréttirnar af Tiger voru að komast í fjölmiðla og verður væntanlega meira að frétta af hans málum síðar í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×