Glamour

Frank Ocean myndaði Met Gala bakvið tjöldin

Ritstjórn skrifar
ASAP og Gwyneth skemmtu sér vel á Met Gala.
ASAP og Gwyneth skemmtu sér vel á Met Gala. Myndir/Frank Ocean
Met Gala fór fram í seinustu viku í New York. Þar mættu allar helstu stjörnurnar og skemmtu sér langt fram á nótt. Söngvarinn Frank Ocean var á svæðinu og var með myndavélina á lofti. 

Hann tók skemmtilegar myndir frá gestum kvöldsins. Myndirnar eru teknar á filmuvél og því einstaklega skemmtilegar. Þær sýna vel stemmninguna frá kvöldinu. 

Hinar ólíklegustu stjörnur, eins og A$AP Rocky og Gwyneth Paltrow, sjást skemmta sér vel saman. Myndirnar tók hann fyrir Vogue og hafa þær slegið í gegn á netheimum.

Gigi Hadid og Alexander Wang
Zoe Kravitz, forsíðufyrirsætan okkur að þessu sinni, ásamt Adwoa Aboah.
Kendall Jenner og Bella Hadid.
Cara Delevingne.
Hailey Baldwin.
Ljósmyndarinn Mario Testino.
Gwyneth og Asap Rocky sæt saman.





×