Skoðun

Álfurinn er fyrir unga fólkið

Arnþór Jónsson skrifar
Álfasala SÁÁ fer fram í þessari viku. Álfurinn er fyrir unga fólkið. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því Vogur tók til starfa hafa yfir 8.000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn.

Sálfræðiþjónusta fyrir börn

SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Yfir 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af álfinum og öðrum styrkjum. Tekjur af álfasölu standa líka undir þjónustu SÁÁ við aðra aðstandendur en allir aðstandendur fólks í áfengis- og vímuefnavanda geta fengið viðtöl, ráðgjöf og setið á fyrirlestrum og námskeiðum í fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ.

Álfasala SÁÁ er eitt umfangsmesta fjáröflunarverkefni á vegum almannasamtaka hér á landi á hverju ári. Frá 1990 hefur álfurinn skilað yfir 600 milljónum króna sem hafa runnið inn í heilbrigðisþjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga og þjónustu við aðstandendur þeirra og börn. Þótt stjórnvöld hafi stutt vel við starf samtakanna í gegnum árin hefur beinn stuðningur almennings gert gæfumuninn.

Mörg hundruð manns um land allt vinna við álfasöluna næstu daga. Þar á meðal eru fjölmargir hópar á vegum íþróttafélaga, skóla og ýmissa samtaka, sem nýta sölulaunin til að greiða fyrir ferðalög eða önnur verkefni á eigin vegum og í eigin heimabyggð.

Takk fyrir stuðninginn

Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Við sem störfum fyrir SÁÁ erum þakklát og finnum til auðmýktar vegna alls þess velvilja sem SÁÁ hefur notið og biðjum íslensku þjóðina nú um að standa enn sem fyrr þétt við bak samtakanna. Takk fyrir stuðninginn, nú sem fyrr. Styðjum SÁÁ - Kaupum álfinn!




Skoðun

Sjá meira


×