Viðskipti erlent

Staða Snapchat sögð slæm

Birgir Olgeirsson skrifar
Gengi félagsins verra en spár gerðu ráð fyrir.
Gengi félagsins verra en spár gerðu ráð fyrir. Vísir/Getty
Hlutabréf í samfélagsmiðlinum Snapchat féllu um 25 prósent eftir að afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2017 var birt.

Þetta er í fyrsta skipti sem Snapchat birtir afkomu félagsins síðan það var sett á markað. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að daglegum notendum miðilsins hefði aðeins fjölgað um fimm prósent á þessu tímabili, miðað við síðasta ársfjórðung 2016.

Stendur því daglegur notenda fjöldi miðilsins í 166 milljónum, sem er tveimur milljónum minna en búist var við, en 36 prósentum hærra en á sama tíma í fyrra.

Þessi tilkynning félagsins gerði það að verkum að gengi bréfa félagsins veiktist um rúmlega 20 prósent eftir að kauphöllinni var lokað í New York.

Tap félagsins var meira en búist var við og þó voru tekjur félagsins einnig lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Tekjurnar jukust um 286 prósent á þessum fyrsta fjórðungi ársins og voru nærri 150 milljónum dollara, sem var þó níu milljónum dollara minna en spár gerðu ráð fyrir.

Snapchat er í harðri samkeppni við Facebook og Instagram. Facebook er með milljarð virkra notenda á hverjum degi og nærri því tvo milljarða virkra notenda í hverjum mánuði.

Instagram er með 400 milljón virka notendur á hverjum degi, en 200 þeirra horfa á Instagram Stories, sem er eftirlíking af aðal viðmóti Snapchat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×