Innlent

Skipuleggjendur Night + Day: Fullkomlega eðlilegt að ekki séu öll leyfi komin

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hluti af aðgangseyri hátíðarinnar verður settur í sjóð sem notaður verður til að bæta aðstöðu í kringum Skógafoss.
Hluti af aðgangseyri hátíðarinnar verður settur í sjóð sem notaður verður til að bæta aðstöðu í kringum Skógafoss. Vísir/Vilhelm
Skipuleggjendur Night + Day tónlistarhátíðarinnar segja að samningar liggi fyrir við landeiganda í Drangshlíðardal og að hátíðin muni fara fram við Skógafoss í sumar. Í gær var greint frá því að umsókn um afnot af tjaldstæði við Skógafoss vegna hátíðarinnar hefði verið hafnað. Umsóknin sneri að aðstöðu fyrir tónleika á landi í eigu Héraðsnefnda Vestur Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu, sem eiga landið við fossinn.

„Þau mál sem eru til umfjöllunar hjá héraðsnefndum Rangeyinga og Vestur-Skaftafellsýslu snúa að útfærslu tjaldstæða og almennrar þjónustu við hátíðargesti á landsvæði héraðsnefndanna austan við Skógá,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að þeir aðilar sem koma að hátíðinni hafi mikla reynslu af skipulagningu viðburða af þessari stærðargráðu, meðal annars tónlistarhátíðinni Secret Solstice, og á þessum tímapunkti sé fullkomlega eðlilegt er að ekki séu öll leyfi komin, enda enn verið að vinna að lokaútfærslu svæðisins. Hún verður unnin í samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu, svo sem sveitastjórnir og íbúa.

Sjá einnig: Tónlistarhátið The xx: Heimamenn vilja tryggja aðgengi að Skógafossi

„Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa verið í nánum samskiptum við yfirvöld og þá aðila sem koma að leyfisveitingum. Næstu skref eru að halda áfram frekari samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu og uppfylla öll þau skilyrði sem hátíðinni eru sett. Áhersla er lögð á að vinna málið í góðri sátt við alla aðila á svæðinu.“

Allt skipulag hátíðarinnar miðast við að aðgengi ferðamanna að Skógafossi skerðist ekki á nokkurn hátt og er hátíðarsvæðið ekki sömu megin árinnar og aðgengi ferðamanna.

Night + Day hátíðin er á vegum hljómsveitarinnar The xx sem hefur haldið samskonar hátíðir víða um heim með góðum árangri, til dæmis í Lissabon, Berlín og Tullum í Mexikó. Markmiðið með hátíðinni er að halda tónleika á stöðum þar sem ekki hafa verið haldnir tónleikar áður. Hluti af aðgangseyri hátíðarinnar verður settur í sjóð sem notaður verður til að bæta aðstöðu í kringum Skógafoss.


Tengdar fréttir

The xx á Íslandi í júlí

Svo virðist sem enska hljómsveitin The xx spili á Íslandi í júlí. Í gær hlóð hljómsveitin upp myndbandi á Facebook-síðu sína sem gaf það til kynna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×