Matur

Í eldhúsi Evu: Kjúklingur saltimbocca

Eva Laufey skrifar
Kjúklingur saltimbocca.
Kjúklingur saltimbocca. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram hinar ýmsu kræsingar. Hér má finna uppskrift að kjúklingi saltimbocca.

Kjúklingur saltimbocca

Fjórar kjúklingabringur

8 hráskinkusneiðar

10-12 fersk salvíublöð

Salt og nýmalaður pipar

1-2 msk. ólífuolía



Skerið kjúklingabringur í tvennt og kryddið með salti og pipar. Leggið eitt salvíublað ofan á kjúklingabringuna og vefjið hráskinkunni utan um hvern bita. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið bringurnar í smá stund á hvorri hlið eða þar til þær eru brúnaðar á öllum hliðum. Leggið bringurnar því næst í eldfast mót og inn í ofn við 180°C í 20 mínútur. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum útbúið þið sósuna og kartöflumús.



Kartöflumús með parmesan­osti

500 g soðnar kartöflur

30 g smjör

1 dl mjólk

Salt og nýmalaður pipar

1 dl rifinn parmesan-ostur



Afhýðið kartöflurnar og bræðið smjörið. Setjið kartöflurnar út í smjörið og takið pottinn af hitanum, stappið kartöflurnar vel saman við smjörið og hellið volgri mjólk út í í smáum skömmtum. Bætið ostinum við og stappið allt vel saman þar til réttri áferð er náð, það er smekksatriði hvað þið notið mikla mjólk en þið finnið það um leið ef þið þurfið að bæta við mjólk. Bragðbætið með salti og pipar.



Hvítvínssósa

2 msk. smjör

6-7 fersk salvíublöð, smátt skorin

700 ml hvítvín

1 stk. kjúklingakraftur

Nýmalaður pipar



Bræðið smjörið á pönnu og steikið salvíublöðin. Hellið hvítvíninu út á og bætið kjúklingakraftinum saman við. Kryddið til með pipar. Leyfið sósunni að sjóða í smá stund, lækkið þá hitann og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×