Matur

Í eldhúsi Evu: Spicy grænmetissúpa

Eva Laufey skrifar
Spicy grænmetissúpa.
Spicy grænmetissúpa. Eva Laufey

Í þættinum Í eldhúsi Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum, töfra ég fram dýrindis kræsingar. Hér er uppskrift að spicy grænmetissúpu.

Spicy grænmetissúpa

1 msk. olía

1 laukur

2 hvítlauksrif

1 rauð paprika

½ spergilkálshöfuð

5-6 gulrætur

350 g hakkaðir tómatar í krukku eða dós

1-2 msk. tómatpúrra

1,5 l kjúklingasoð (soðið vatn + 2 kjúklingateningar)

1 tsk. paprikukrydd

½ tsk. cumin-krydd

½ tsk. þurrkaður kóríander

1 tsk. karrí

Salt og pipar



Hitið olíu í potti, skerið grænmetið mjög smátt og steikið í smá stund eða þar til grænmetið verður mjúkt. Bætið kjúklingasoði, hökkuðum tómötum og tómatpúrru saman við. Kryddið til með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan og leyfið súpunni að malla í lágmark 30 mínútur. Mér finnst súpan alltaf betri ef hún fær að malla svolítið lengi.

Meðlæti með súpunni

1 msk. olía

Tortillakökur, skornar í litla bita

Sýrður rjómi

Lárpera

Ferskur kóríander

Hreinn fetaostur

Hitið olíu við vægan hita á pönnu, skerið tortillakökurnar í litla bita og steikið á pönnu í 1- 2 mínútur eða þar til kökurnar eru gullinbrúnar.

Berið súpuna fram með stökkum tortillavefjum, smátt skorinni lárperu, smátt söxuðum kóríander, sýrðum rjóma og hreinum fetaosti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×