Menning

Trump-tröllin í íslenska skálanum í Feneyjum vekja athygli

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Egill með tröllunum Ugh og Boogar.
Egill með tröllunum Ugh og Boogar. mynd/kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar
Íslenski skálinn á Feneyjartvíæringnum er nú þegar farinn að vekja athygli þrátt fyrir að listasýningin opni ekki formlega fyrr en á morgun. Síðustu daga hefur staðið yfir forsýning á tvíæringnum en Egill Sæbjörnsson er listamaðurinn sem ber ábyrgð á íslenska skálanum.

Ítarlega er fjallað um Egil og verk hans á tvíæringnum í grein á The Guardian í dag. Þar segir að Egill hafi ákveðið að eftirláta tröllunum Ugh og Boogar að taka yfir íslenska skálann. Tröllin eru skáldlegar verur sem hafa verið hluti af lífi Egils í áratug og eru samkvæmt honum mjög ill í skapinu auk þess sem þau borða fólk.

„Það er erfitt. Stundum kem ég til baka í stúdíóið og þá liggja brjóst af dauðu fólki úti um allt,“ segir Egill í samtali við The Guardian.

Þegar tröllin heyrðu síðan af því að hann ætti að sjá um íslenska skálann á Feneyjartvíæringnum urðu þau mjög öfundsjúk og kröfðust þess að hann myndi láta þeim eftir skálann.

Skálinn samanstendur af tveimur þriggja hæða mannvirkjum sem hvort um sig mynda höfuð Ugh og Boogar. Gestir geta gengið inn og upp um höfuðin en út úr þeim standa tvö stór nef.

Vídjólistaverkum er síðan varpað á þessi mannvirki svo þau lifna við og verða að tröllaandlitum. Þau hreyfa sig, anda og tala um það á sín á milli hvaða ferðamenn í Feneyjum eru girnilegastir til að borða.

 

Í grein Guardian eru tröllin kölluð Trump-tröll þar sem að andlitum þeirra Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.   

Grein Guardian má lesa hér en ítarlega verður rætt við Egil í helgarblaði Fréttablaðsins á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×