Handbolti

Rúnar og félagar náðu í nauðsynlegan sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar stýrði Balingen til sigurs í dag.
Rúnar stýrði Balingen til sigurs í dag. vísir/getty
Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í Balingen-Weilstetten unnu afar mikilvægan sigur á Leipzig, 28-23, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Balingen er nú í 16. sæti deildarinnar með 17 stig, jafn mörg og Íslendingaliðið Bergischer og Stuttgart.

Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk, öll úr vítaköstum, þegar Hannover-Burgdorf gerði jafntefli, 24-24, við Stuttgart á heimavelli.

Þetta var fyrsta stig Hannover á þessu ári en fyrir leikinn í dag var liðið búið að tapa 10 leikjum í röð. Hannover er í 10. sæti deildarinnar með 23 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×