Handbolti

Kiel varði 3. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð og félagar eru þremur stigum á eftir toppliði Flensburg.
Alfreð og félagar eru þremur stigum á eftir toppliði Flensburg. vísir/getty
Kiel bar sigurorð af Füchse Berlin, 32-28, þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Berlínarrefirnir áttu möguleika á að komast upp fyrir Kiel með sigri í dag. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans höfðu hins vegar lítinn áhuga á að láta það gerast.

Bjarki Már Elísson átti flottan leik í liði Füchse Berlin en íslenski landsliðsmaðurinn skoraði sex mörk úr jafn mörgum skotum.

Kiel er í 3. sæti deildarinnar með 47 stig, þremur stigum á eftir toppliði Flensburg sem vann Lemgo, 30-27, á sama tíma í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×