Innlent

Varað við stormi á Suðausturlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eins og sést á vindaspánni verður mjög hvasst suðaustan til í kvöld.
Eins og sést á vindaspánni verður mjög hvasst suðaustan til í kvöld. mynd/veðurstofan
Veðurstofan varar við stormi á Suðausturlandi í kvöld og allra syðst á landinu þar sem meðalvindur gæti náð meira en 20 metrum á sekúndu.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að dagurinn byrji með austan kalda og skúrum en rólegu og þurru veðri norðanlands. Síðdegis nálgast svo lægð úr suðri og bætir í vindinn en undir kvöld verður kominn norðaustan strekkingur og þá mun væntanlega slá í staðbundinn storm syðst og suðaustan til, til dæmis á veginum við Öræfajökul.

Lægðinni fylgir úrkoma og mun rigna um allt land í kvöld og nótt. Á morgun lægir og styttir upp að mestu.

 

„Dregur næst til tíðinda í veðri á miðvikudag, þá gera spár ráð fyrir að gangi í allhvassa norðanátt. Svo virðist sem þessi norðanátt verði ekki af köldustu sort sem þýðir að úrkoman, sem einkum verður bundin við norðanvert landið, muni falla sem rigning á láglendi og það verður nóg af henni. Væntanlega gránar þó í fjöll.

Ef við skyggnumst lengra inn í framtíðina, þá gengur norðanáttin niður á fimmtudag og mestar líkur eru á rólegu og úrkomulitlu veðri í vikulokin,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings en veðurhorfur næstu daga eru annars þessar:

Austan 5-13 m/s og skúrir, en hægari og þurrt norðanlands. Vaxandi norðaustanátt þegar kemur fram á daginn, 8-15 undir kvöld, en 15-23 á Suðausturlandi og syðst á landinu. Rigning um allt land í kvöld og nótt. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Lægir á morgun og styttir upp að mestu.

Á þriðjudag:

Minnkandi vindur og rigning. Breytileg átt 3-10 síðdegis, skýjað á köflum og smáskúrir, einkum við ströndina. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast í innsveitum.

Á miðvikudag:

Norðan 10-18 m/s og talverð rigning á norðanverðu landinu. Hægari vindur og úrkomuminna sunnantil. Hiti 2 til 11 stig, mildast syðst.

Á fimmtudag:

Minnkandi norðanátt og rigning, en bjartviðri á Suðurlandi. Hiti breytist lítið.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:

Breytileg átt, yfirleitt hægur vindur. Skýjað með köflum og úrkomulítið á landinu. Fremur milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×