Íslenski boltinn

Atli aftur í Vesturbæinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli hefur leikið 43 leiki fyrir KR í efstu deild og skorað þrjú mörk.
Atli hefur leikið 43 leiki fyrir KR í efstu deild og skorað þrjú mörk. vísir/vilhelm
Atli Sigurjónsson er genginn í raðir KR á nýjan leik.

Atli lék áður með KR á árunum 2012-15. Um mitt sumar 2015 gekk hann í raðir Breiðabliks og lék með liðinu þangað til í vetur.

Atli, sem er uppalinn hjá Þór á Akureyri, hefur leikið 93 leiki í efstu deild og skorað sjö mörk. Af þessum 93 leikjum voru 43 í búningi KR.

KR situr í 4. sæti Pepsi-deildar karla með sex stig eftir þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×