Fótbolti

Fimm milljarðar króna undir hjá leikmönnum Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Verður peningastress á leikmönnum Man. Utd?
Verður peningastress á leikmönnum Man. Utd? vísir/getty
Það er mikið undir hjá Man. Utd er liðið spilar gegn Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í næstu viku.

Nái United að vinna leikinn þá kemst liðið í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Tapist leikurinn aftur á móti þá munu leikmenn liðsins verða að stórum fjárhæðum.

Samanlagt launatap leikmanna liðsins er rúmir fimm milljarðar íslenskra króna. Man. Utd gerir ráð fyrir því að vera í Meistaradeildinni á hverju ári og þegar liðið er ekki þar lækka laun leikmanna um 25 prósent. Það er því mikið undir hjá öllum.

Vinni liðið leikinn þá hækka launin mikið á næstu leiktíð og leikmenn munu einnig skipta með sér 132 milljón króna bónus fyrir sigur í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×