Íslenski boltinn

Eiður Aron orðinn leikmaður Vals

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður Aron í leik með ÍBV.
Eiður Aron í leik með ÍBV. vísir/valli
Varnarmaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson er búinn að fá leikheimild frá KSÍ og því orðinn leikmaður Vals.

Það hefur legið í loftinu í þó nokkurn tíma að Eyjamaðurinn væri á leið á Hlíðarenda en ekki var víst hvort hann kæmi núna eða í júlí.

Á vef KSÍ er aftur á móti búið að staðfesta að Eiður Aron sé kominn með leikheimild.

Eiður Aron kemur til Vals frá Holstein Kiel í Þýskalandi en hann hefur einnig leikið í Svíþjóð og Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×