Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Þrjú lið með jafnmörg stig á toppnum | Myndbönd

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valsmenn misstu frá sér toppsætið.
Valsmenn misstu frá sér toppsætið. Vísir/Eyþór
Vísir gerir upp þriðju umferð Pepsi-deildar karla, sem lauk í gærkvöldi. Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Stjörnumenn eru komnir á topp Pepsi-deildarinnar eftir 3-1 sigur á Breiðabliki í Kópavogi en Valsmenn töpuðu aftur á móti sínum fyrstu stigum í sumar þegar þeir gerðu jafntefli á heimavelli við FH. Stjarnan er með sjö stig á toppnum eins og KA og Valur. Það hafa því öll liðin tapað stigum í fyrstu þremur umferðunum.

Nýliðar KA halda áfram góðri byrjun sinni og urðu fyrsta liðið til að skora hjá Fjölnismönnum í 2-0 sigri fyrir norðan. KA-liðið hefur fengið sjö stig og skorað 7 mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í úrvalsdeildinni í þrettán ár.

Íslandsmeistarar FH gerðu jafntefli í öðrum leiknum í röð og eru komnir niður í fimmta sæti deildarinnar. KR-ingar komust upp fyrir FH-liðið með öðrum 2-1 sigri sínum í röð.

Á hinum enda töflunnar eru Breiðablik og ÍA bæði stigalaus eftir þrjár umferðir en öll hin tíu lið deildarinnar hafa náð að fagna sigri í sumar.



Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

KR - ÍA 2-1

ÍBV - Víkingur R. 1-0

Grindavík - Víkingur Ó. 1-3

KA - Fjölnir 2-0

Breiðablik - Stjarnan 1-3

Valur - FH 1-1



Góð umferð fyrir ...
Hilmar Árni Halldórsson skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir Stjörnumenn.Vísir/Anton
... Stjörnumenn sem fylgdu eftir 5-0 sigri á ÍBV með því að vinna 3-1 sigur á Breiðabliki liðinu sem þeir höfðu ekki fengið eitt einasta stig á móti í fjórum innbyrðisleikjum liðanna 2015 og 2016. Stjörnuliðið hefur nú skorað tíu mörk í fyrstu þremur leikjum sínum og liðið heldur áfram að fá mörk frá varnarmönnum, miðjumönnum og sóknarmönnum í sínum leikjum. Þessir tveir stóru sigrar hafa skilað Garðbæingum upp í toppsæti deildarinnar.

... Eyjamenn sem töpuðu illa á móti Stjörnunni í 2. umferðinni og voru ekki búnir að skora í fyrstu tveimur leikjum sínum þegar kom að leiknum við Víkinga. Kristján Guðmundsson náði hinsvegar að loka vörninni sem fékk á sig fimm mörk í leiknum á undan og eitt mark nægði Eyjaliðinu til að taka öll þrjú stigin á móti Reykjavíkur-Víkingum. Eyjamenn hafa  kannski bara skorað eitt mark í sumar, en þeir hafa haldið tvisvar hreinu í fyrstu þremur leikjum sínum og eru í áttunda sætinu með 4 stig.

... Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó. Ólafsvíkingar hafa bætt sig með hverjum leik í sumar og unnu flottan 3-1 sigur í Grindavík í 3. umferðinni. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga, var búinn að lesa Grindvíkurliðið og skipti um leikaðferð sem gekk fullkomlega upp. Eftir mjög slakan tapleik á móti Val og stigalausan en mjög góðan leik á móti KR þá náðu Ólsarar í sín fyrstu stig í sumar. Ef liðið heldur áfram að bæta sig á milli leikja þá er von á góðu á Snæfellsnesinu í sumar.

Slæm umferð fyrir ....
Skagamenn töpuðu þriðja leiknum í röð.Vísir/Anton
... Guðmund Ársæl Guðmundsson dómara. Hann gerði dómaramistök ársins er hann fattaði ekki að gefa KA-manninum Almarri Ormarssyni rautt spjald eftir að hann gaf leikmanninum gula spjaldið í annað sinn. Ótrúlegt klúður sem mun elta dómarann í allt sumar. Hann verður undir smásjánni.

... Breiðablik sem tapaði sínum þriðja leik í röð. Það er ekki bara að liðið sé að valda vonbrigðum á vellinum heldur virðist stjórn félagsins vera í tómu rugli. Rak þjálfarann án þess að vera með annan þjálfara tilbúinn og stjórnin hefur því sett liðið í hendurnar á manni sem virðist ekki hafa nákvæmlega neinn áhuga á því að þjálfa liðið.

... Skagamenn sem eru búnir að tapa öllum sínum leikjum rétt eins og Breiðablik. ÍA er þess utan búið að fá á sig heil tíu mörk í fyrstu leikjunum. Andstæðingarnir vissulega erfiðir en spilamennska liðsins er langt frá því að vera sannfærandi.

Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni
Hörð barátt á Kópavogsvelli.Vísir/Anton
Kristinn Páll Teitsson á Kópavogsvelli

„Vallarþulurinn tilkynnir að gamla stúkan hafi verið opnuð til að koma fleiri áhorfendum fyrir og það fer strax straumur af fólki yfir. Það er vel mætt í kvöld.“

Anton Ingi Leifsson á Grindavíkurvelli

„Eftir aukaspyrnu virtist skot Andra Rúnars Bjarnasonar vera á leið yfir, en boltinn náði ekki alla leið og vindurinn greip í hann. Boltinn skoppaði nánast á marklínu, en fauk svo bara í burtu. Vindurinn að taka þátt!“

Arnar Geir Halldórsson á Akureyrarvelli

„Það er heldur betur mikið um dýrðir hér í aðdraganda leiksins. Leiðin okkar allra með Hjálmunum er flutt af forsöngvara og myndarlegum karlakór. Liðin eru að ganga inn á völlinn. Stúkan nánast orðin full.“

Tryggvi Páll Tryggvason á Valsvelli

„Heimir situr á rökstólunum með aðstoðarmönnum sínum. Þeir þurfa að finna lausnir og það fljótt því að annars fer FH með 0 stig heim í fjörðinn fagra.“



Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Aleksandar Trninic, KA 8

Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA  8

Rasmus Steenberg Christiansen; Val 8

Sindri Snær Magnússon, ÍBV 8

Sigurður Grétar Benónýsson, ÍBV  8

Atli Guðnason, FH 8

Halldór Orri Björnsson; FH 4

Viktor Örn Margeirsson, Breiðabliki 4

Hrvoje Tokic, Breiðabliki 4

Dofri Snorrason, Víkingi R. 4

Vladimir Tufegdzic, Víkingi R. 4

Aron Ingi Kristinsson, ÍA 4

Arnar Már Guðjónsson, ÍA  4

Stefán Teitur Þórðarson, ÍA  4

Hans Viktor Guðmundsson, Fjölni 4

Igor Jugovic, Fjölni 4

Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni  4

Hákon Ívar Ólafsson, Grindavík 4

Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 4

Jón Ingason, Grindavík 4

Aron Freyr Róbertsson, Grindavík 4

Andri Rúnar Bjarnason, Grindavík 4

Umræðan á #pepsi365

Gullmarkið
Augnablikið
Bestur
Trabantinn
120 sekúndur

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×