Bílar

Bestu tilþrifin frá torfærunni á Hellu

Finnur Thorlacius skrifar
Bílunum var ekki hlíft í tofærunni á Hellu um helgina.
Bílunum var ekki hlíft í tofærunni á Hellu um helgina.
Það voru 3.200 spenntir áhorfendur sem mættu á fyrstu torfæru sumarsins sem fram fór á Hellu á laugardaginn. Eknar voru sex brautir. Fyrstu þrjár þeirra voru hefðbundnar brautir. Síðan kom að tímabraut og þá önnur tímabraut í ánni og að lokum mýrin fræga sem síðasta braut. Keppnin gekk mjög vel fyrir sig og sólin lét sjá sig vel, en reyndar var þónokkur vindur meðan á mótinu stóð.

Í götubílaflokki mætti Ragnar Skúlason á Íslandsmeistarabílnum sem Ívar Guðmundsson hefur verið á löngum. Ragnar er fyrrverandi Íslandsmeistari árin 1992 og 1994. Hann var með forystuna lengi vel en velti í tímabrautinni og Eðvald Orri fór þar með upp í fyrsta sætið.

Í sérútbúna flokknum var það Guðmundur Ingi Arnarson sem vann nokkuð örugglega eftir að Atli Jamil, sem var með forystuna fyrir tímabraut, velti í henni og Geir Evert Grímsson stoppaði í mýrinni. Guðmundur Ingi var í öðru sæti í Íslandsmótinu í fyrra. Elías Guðmundsson hafnaði í 3. sæti í sinni annarri keppni. Hann fékk lánaðan bíl frá Akureyri í fyrra, en hann fjárfesti í bíl frá Noregi fyrir keppnisröðina í ár og var að keppa í sinni fyrstu keppni á nýja bílnum.

Árni Kópsson mætti heldur betur til leiks og sýndi og sannaði að hann hefur engu gleymt. Hraðametið á ánni er 87 km hraði, Guðbjörn Grímsson setti það árið 2014. Árni náði 84 km hraða. Frábært var að fylgjast með endurkomu hans í þessari keppni. Gestur J. Ingólfsson fékk tilþrifaveðlaunin. Næsta torfærukeppni fer svo fram í Stapafelli á Reykjanesinu laugardaginn 27. maí. Úrslitin í keppninni á Hellu urðu þessi og myndband unnið af Jakob C frá keppninni má finna að neðan:

Sérútbúnir bílar

1.796     1       Guðmundur Ingi Arnarson   Ljónið

1.579     2       Magnús Sigurðsson              Kubbur

1.566     3       Elías Guðmundsson             Ótemjan

1.385     4       Geir Evert Grímsson            Sleggjan

1.364     5       Þór Þormar Pálsson              THOR

1.350     6       Atli Jamil Ásgeirsson           Thunderbolt

1.267     7       Arnar Elí Gunnarsson           Allin

1.233     8       Gestur Jón Ingólfsson           Draumurinn

1.231     9       Árni Kópsson                       Heimasætan

1.042   10      Ingólfur Guðvarðarson         Guttinn Reborn

   808    11      Aron Ingi Svansson              Zombie

   710    12      Valdimar Jón Sveinsson       Crash Hard

   683    13      Birgir Sigurðsson                  General doctorinn

Götubílaflokkur

1.492          1     Eðvald Orri Guðmundsson   Pjakkurinn

1.220          2     Ragnar Skúlason                  Kölski   

   910          3     Haukur Birgisson                 Þeytingur   

   560          4     Steingrímur Bjarnason        Strumpurinn   

   150          5      Sveinbjörn Reynisson         Bazooka




Fleiri fréttir

Sjá meira


×