Handbolti

Ólafur með stórleik og Kristianstad aðeins einum sigri frá úrslitunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur kom með beinum hætti að 11 mörkum Kristianstad.
Ólafur kom með beinum hætti að 11 mörkum Kristianstad. vísir/getty
Kristianstad er aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta karla eftir stórsigur á Ystads, 37-25, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum í kvöld.

Ólafur Guðmundsson átti frábæran leik í liði Kristianstad. Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði sjö mörk úr 11 skotum og gaf fjórar stoðsendingar.

Arnar Freyr Arnarsson átti einnig góðan leik inni á línunni og skoraði fjögur mörk úr fimm skotum.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði úr eina skotinu sem hann reyndi og gaf auk þess tvær stoðsendingar.

Fjórði leikur Kristianstad og Ystad fer fram á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×