Lífið

Steindi Jr., Emmsjé Gauti og Jón Jónsson fundu allir tvífara sinn í sömu vikunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einstaklega flottir gaurar.
Einstaklega flottir gaurar.
Grínistinn Steinþór Hróar Steinþórsson og tónlistarmennirnir Jón Ragnar Jónsson og Gauti Þeyr Másson hafa allir fundið erlendan tvífara sinn og það á aðeins nokkurra daga fresti.

Emmsjé Gauti og Jón Jónsson greina báðir frá þessu á samfélagsmiðlunum Twitter og Facebook en það var síðan útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Kjartan Atli Kjartansson sem benti Steinda Jr. á sinn tvífara í vikunni.

Líkindin eru með ólíkindum og er hreinlega erfitt að sjá mun á þessum sexmenningum.

Hér að neðan má sjá þrjár útgáfur af tvíförum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×