Tónlist

Emmsjé Gauti ber að ofan með barnavagn í nýju myndbandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Emmsjé Gauti nokkuð nettur á því í nýju myndbandi.
Emmsjé Gauti nokkuð nettur á því í nýju myndbandi.
Rapparinn Emmsjé Gauti gaf út nýtt myndband í dag við lagið Lyfti mér upp sem er á plötu hans Sautjándi nóvember.

Í myndbandinu tekur hann sér ýmislegt fyrir hendur, fer meðal annars að versla í Melabúðinni, út að labba með barnavagn og í gufu.

Rúsínan í pylsuendanum er svo einmitt í blálok myndbandsins þegar rapparanum GKR bregður fyrir og mælum við því með því að horfa alveg til enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×