Lífið

Falleg íslensk heimili: Ekta íslensk og rómantísk íbúð í hjarta borgarinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matreiðslumennirnir Ylfa Helgadóttir og Alfreð Pétur Sigurðsson búa í fallegu húsi við Bergstaðarstræti í miðborg Reykjavíkur. Þau hafa komið sér einstaklega vel fyrir í bænum og halda í upprunalega stílinn.

Bergstaðarstræti dregur nafn sitt af Bergstöðum, Torfbær sem stóð þar sem nú er bílageymsluhús með sama nafni við mót Bergstaðarstrætis og Skólavörðustígs.

Upphaf götunnar má rekja aftur til ársins 1860 en flest hún voru byggð um og eftir aldarmótin 1900. Við götuna standa reisuleg timburhús sem voru flutt þangað úr öðrum bæjarhlutum. Það á einmitt við um Bergstaðarstræti 36 þar sem Ylfa og Alfreð búa. Það hús stóð upphaflega við Hverfisgötu 40.

Í dögunum var kíkt í heimsókn til þeirra hjóna í þáttunum Falleg íslensk heimili.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×