Enski boltinn

Defoe vill fara til West Ham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Defoe þakkar stuðningsmönnum Sunderland fyrir stuðninginn.
Defoe þakkar stuðningsmönnum Sunderland fyrir stuðninginn. vísir/getty
Hinn síungi framherji Sunderland, Jermain Defoe, mun hafa vistaskipti í sumar.

Sunderland er fallið niður í B-deildina og þar af leiðandi er Defoe laus allra mála hjá félaginu.

Þessi 34 ára framherji er búinn að skora 15 mörk fyrir Sunderland í vetur og langt frá því að vera dauður úr öllum æðum.

Tony Cottee hjá Sky Sports og fyrrum West Ham goðsögn segir að Defoe vilji fara til West Ham þar sem hann hóf atvinnumannaferilinn.

Bournemouth hefur þegar sýnt Defoe áhuga þannig að hann mun hafa úr einhverju að velja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×