Erlent

Tólf ára drengur skaut stúlku til bana í beinni á Facebook

Atli Ísleifsson skrifar
Stúlkan var skotin í andlitið.
Stúlkan var skotin í andlitið.
Tólf ára drengur skaut fyrir slysni stúlku til bana í Argentínu á þriðjudag. Harmleikurinn átti sér stað í bænum Santa Rosa de Calchines þar sem drengurinn var að leika sér með skotvopn. Annað barn var með símann á lofti og sýndi beint frá atvikinu í gegnum Facebook Live.

Í frétt Sky News segir að stúlkan hafi verið skotin í andlitið, en skotvopnið er í eigu föður drengsins. Tvö börn til viðbótar voru á staðnum.

Talsmenn lögreglu segja málið vera til rannsóknar en að það sé rannsakað sem slys. Argentínskir fjölmiðlar segja stúlkuna hafa heitið Georgina Magali Vega.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dráp er sýnt í beinni útsendingu á Facebook. Þannig sýndi taílenskur karlmaður fyrr í vor frá því beint á Facebook þegar hann drap ellefu mánaða gamla dóttur sína áður en hann svipti sér lífi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×