Erlent

Skilnaður í dönsku konungsfjölskyldunni

Atli Ísleifsson skrifar
Alexandra prinsessa og Jefferson greifi gengu að eiga hvort annað í Gråsten höllinni á Jótlandi árið 1998.
Alexandra prinsessa og Jefferson greifi gengu að eiga hvort annað í Gråsten höllinni á Jótlandi árið 1998. Vísir/AFP
Alexandra prinsessa og Jefferson greifi hafa ákveðið að skilja eftir átján ára hjónaband. Frá þessu greinir í yfirlýsingu frá dönsku konungshöllinni.

Alexandra prinsessa er dóttir Benediktu prinsessu, yngri systur Margrétar Þórhildar Danadrottningar.

„Þetta er ótrúlega erfið ákvörðun. Við höfum þekkst í þrjátíu ár, en það er komið að þeim tímapunkti að við verðum að viðurkenna að við höfum vaxið hvort frá öðru,“ er haft eftir Alexöndru í yfirlýsingunni.

Alexandra prinsessa og Jefferson greifi segjast þó áfram munu standa saman í uppeldinu á börnunum, þeim Ríkarði, fæddum 1999, og Ingiríði, fæddri 2003.

Þau Alexandra og Jefferson gengu að eiga hvort annað í Gråsten höllinni árið 1998. Síðustu ár hafa þau búið í Þýskalandi.

Í frétt DR segir að þetta sé annar skilnaðurinn í dönsku konungsfjölskyldunni. Sá fyrsti var skilnaður Jóakims prins og þáverandi prinsessunnar Alexöndru árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×