Skoðun

Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi kallar á norrænt samstarf

Valgerður Gunnarsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar
Í byrjun apríl sl. sátum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi þar sem fulltrúar norrænu landanna samþykktu einróma ályktun um að taka höndum saman í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Ályktunin byggir á tillögum sem mótaðar hafa verið með aðstoð helstu sérfræðinga á Norðurlöndum á þessu sviði. Tillögurnar eru birtar í hvítbók sem Norðurlandaráð hefur gefið út. Norðurlandaráð vill að mótuð verði norræn langtímastefna á þessu sviði með eftirfarandi að leiðarljósi:

1Dregið verði úr þörf fyrir sýklalyfjameðferð með bólusetningum og aðgerðum sem fyrirbyggja smithættu.

2Notkun sýklalyfja til meðferðar á fólki og dýrum verði takmörkuð.

3 Safnað verði þekkingu um útbreiðslu og útbreiðslumynstur sýklalyfjaónæmis og um æskilega notkun á þeim sýklalyfjum og bólusetningum sem þegar eru til staðar.

4 Búið verði til hvatakerfi til þróunar á nýrri heilbrigðistækni, nýskapandi lyfjum og bólusetningum.

Í hvítbókinni eru tilgreindar tólf aðgerðir sem grípa ber til í sameiginlegri norrænni aðgerðaráætlun.

Ónæmi gegn sýklalyfjum er vaxandi vandamál. Það gerir meðferð gegn sjúkdómum tímafrekari og kostnaðarsamari en ella og er talið valda ótímabærum dauða yfir fimm hundruð þúsund manna, kvenna og barna á ári hverju í heiminum. Ef ekki tekst að stöðva þessa óheillavænlegu þróun getur sú tala tuttugufaldast á næstu tveimur eða þremur áratugum og farið upp í tíu milljónir manna árlega. Við teljum að þetta sé ein af alvarlegustu ógnum sem steðja að mannkyni og við fögnum því að Norðurlandaráð hefur lagt fram heildstæða áætlun um að berjast gegn sýklalyfjaónæmi með markvissum tillögum.

Sýklalyfjaónæmi kallar á þverfaglegt átak, á lands-, svæðis- og alþjóðavísu. Margir mismunandi aðilar sem starfa á ólíkum sviðum þurfa að taka höndum saman og vandinn verður ekki leystur án markvissra pólitískra aðgerða. Nú er það í höndum Norrænu ráðherranefndarinnar, sem er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Norðurlanda, að hrinda tillögum Norðurlandaráðs í framkvæmd. Við hvetjum bæði heilbrigðisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að fylgja málinu eftir þegar þeir koma til funda með norrænum starfssystkinum sínum á næstu mánuðum.

Hvítbókin er aðgengileg á vefnum á dönsku og ensku undir heitinu „12 konkrete tiltak, Norden i samlet kamp mod antimikrobiel resistens“.




Skoðun

Sjá meira


×