Viðskipti erlent

Vandræði Trumps farin að smitast út á markaðinn

Sæunn Gísladóttir skrifar
Margt erfitt hefur gengið á hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta í vikunni.
Margt erfitt hefur gengið á hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta í vikunni. vísir/epa
Vandræði Donalds Trump Bandaríkjaforseta virtust engan enda ætla að taka síðastliðna viku, í málum á borð við tengsl við Rússland, brottrekstur yfirmanns alríkislögreglunnar og fleira, og nú eru áhrif þeirra farin að smitast á markaði.

CNN greinir frá því að miðvikudagurinn hafi verið versti dagur Dow-vísitölunnar í átta mánuði en hún lækkaði um 1,8 prósent. Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók dýfu í kjölfar þess að greint var frá minnisblaði þess efnis að Trump hefði beðið James Comey, yfirmann FBI, alríkislögreglu Bandaríkjanna, að hætta að rannsaka Michael Flynn, fyrrverandi öryggisráðgjafa sinn.

Lilja Alfreðsdóttir telur að markaðir muni næst bregðast við viðbrögðum við efnahagsstefnu Trump.vísir/eyþór
Lækkunin hafði áhrif á Asíumarkað og Ástralíumarkað en hlutabréf þar lækkuðu í gærmorgun.

CNN hefur eftir Lukman Otunuga, greiningaraðila hjá FXTM, að vegna aukinna ásakana um að Trump sé að hindra réttlæti og að margir kalli eftir ákæru hans (e. impeachment) gæti Trump þurft að hætta á undan áætlun.

„Nú er öll hækkunin frá kjöri hans að ganga til baka. Það sem er athyglisvert er að í gær féll gengi í amerískum bönkum verulega, eða um fimm prósent. Ávöxtunarkrafan hefur verið að lækka og það virðist vera vegna hræringa og pólitísks óróa,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem hefur fylgst vel með valdatíð Trumps.

„Tíðar mannabreytingar í Hvíta húsinu og óstöðugleiki er varðar mannval í teymi forsetans er mögulega að valda ákveðnum titringi,“ segir hún. „Ég tengi þetta fyrst og síðast við það að markaðir séu kannski orðnir minna trúaðir á það að hann geti komið sinni efnahagsstefnu í gegn vegna þess sem hefur verið að gerast í Hvíta húsinu.“

Markaðir tóku við sér í Bandaríkjunum í gær en höfðu ekki um eftirmiðdaginn í gær náð að vinna til baka lækkunina frá deginum áður. S&P 500 hafði þá hækkað um 0,07 prósent, Nasdaq um 0,24 prósent og Dow staðið í stað.

Varðandi þróun markaðarins segir Lilja skipta mestu máli núna hvernig þingið mun taka efnahagsáætlun Trumps. „Það verður vísbending um hvað muni koma. Nú þurfum við að sjá hvort hann hefur stuðning inni í þinginu og markaðurinn mun líklega bregðast við því hversu trúverðug áætlunin er og hversu líklegt er að hann muni njóta stuðnings inni í þinginu." 


Tengdar fréttir

Martraðarbyrjun hjá Donald Trump

Forseti Bandaríkjanna er óvinsælli en fyrirrennarar hans voru eftir jafn langt starf. Tvö hneykslismál skekja nú ríkisstjórn Trumps. Hann á að hafa beðið yfirmann FBI um að stöðva rannsókn á þjóðaröryggisráðgjafa og deilt leynilegu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×