Innlent

Tíu í haldi grunaðir um fíkniefnasmygl

Snærós Sindradóttir skrifar
Tíu manns hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem enn stendur yfir á síðustu tveimur mánuðum hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Tíu manns hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem enn stendur yfir á síðustu tveimur mánuðum hjá lögreglunni á Suðurnesjum. vísir/eyþór
Tíu manns sitja í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Suðurnesjum grunaðir um fíkniefnasmygl. Einstaklingarnir komu hver í sínu lagi til landsins með flugi og voru ýmist með fíkniefnin innvortis eða í farangri sínum. Um tvær konur og átta karlmenn er að ræða.

Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi í fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum, segir að um óvenju miklar annir sé að ræða. „Þetta eru allt sterk fíkniefni, ýmist kókaín eða amfetamín. Einnig MDMA-efni,“ segir Jón Halldór um fíkniefnin sem flutt hafa verið til landsins á undanförnum tveimur mánuðum og hlaupa samanlagt á nokkrum kílóum.

Enginn Íslendingur er á meðal þeirra tíu sem sitja í gæsluvarðhaldi. Um er að ræða einn Bandaríkjamann, tvo frá Brasilíu og sjö Hollendinga eða einstaklinga með tengingar við Holland eins og frá fyrrverandi nýlendu Hollands, Súrínam.

Að sögn Jóns Halldórs hefur lögreglan enn ekki fengið botn í hvort þetta merki stóraukinn innflutning á fíkniefnum eða hvort um heppni lögreglu og tollayfirvalda sé að ræða.

Þrátt fyrir að um tíu aðskildar sendingar sé að ræða, frá jafn mörgum einstaklingum, hefur lögreglan til rannsóknar hvort tengingar séu á milli sendinganna. Þær eigi sér mögulega sömu upptök hér á landi eða erlendis. Jón Halldór vill ekki segja til um hvort lögreglan sé einhverju nær um hvort svo sé. „Það er eitthvað sem ég ætla bara að halda fyrir mig á þessu stigi. Við erum að sjálfsögðu að skoða tengingar á milli þessara mála en hvernig þetta er vaxið neita ég að tjá mig um eins og staðan er. Þessi mál eru á viðkvæmu stigi og flest á fullu í rannsókn en þetta er samt staðan.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×