Fótbolti

Þjálfari Víðis: Helst vil ég klára þetta í fyrri hálfleik og verjast í seinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Víðir úr Garði dró Fylki sem andstæðing sinn í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla en leikurinn fer fram fimmtudaginn 1. júní klukkan 19.15.

Víðismenn, sem leika í 2. deildinni, lögðu Árborg í 32 liða úrslitum og mæta næst toppliði Inkasso-deildarinnar. Bryngeir Torfason, þjálfari Víðis, segir Fylkisliðið gott en það var ekki óskamótherjinn.

„Raunverulega óskin var að fá Grindavík. Við vildum fá heimsókn frá Grindavík en það gekk ekki eftir. En Fylkir er svakalega flott lið,“ segir Bryngeir.

„Ég þekki vel til hjá Fylki. Þar eru gamlir félagar úr 2. flokknum sem ég þjálfaði þarna sem eru undirstaðan í liðinu hjá Helga. Þarna er mikil stemning þannig við bíðum bara spenntir.“

Fylkisliðið er vitaskuld talið sterkara fyrir leik en er Víðisliðið nógu gott til að skella Árbæingum? „Við gætum veitt þeim mikla keppni en hlutföllin eru líklega 60-40 þeim í vil. En á góðum degi og með gott veður þá er fótboltinn að ná gildunum sínum. Þá getum við veitt þeim verulega keppni,“ segir Bryngeir.

„Víðir hefur margoft staðið sig vel í bikarkeppni þannig það var kominn tími núna á að gera þetta vel. Strákarnir hafa staðist prófið alveg svakalega vel. Það eru dugnaðarforkar í þessum hóp. Alveg frábært fótboltalið,“ segir þjálfarinn en býst hann við framlengingu og vítaspyrnukeppni?

„Ég vildi nú helst klára þetta í fyrri hálfleik og vera svo í vörn restina af leiknum. Vítaspyrnukeppni væri samt mjög skemmtileg fyrir okkur á Reykjanesinu og sérstaklega Garðsbúana. Líklega verður samt spenna alveg fram á lokamínútu. Við munum gera allt til að ná sigri og hafa góðan dag,“ segir Bryngeir Torfason.

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×