Glamour

Met Gala 2017: Verst klæddu stjörnurnar

Ritstjórn skrifar
Það eru ekki allir sem hitta í mark á rauða dreglinum.
Það eru ekki allir sem hitta í mark á rauða dreglinum. Mynd/Getty
Rétt eins og það er nauðsynlegt að vekja athygli best klæddu stjörnum gærkvöldsins þá er alveg jafn mikilvægt að fjalla um verst klæddu stjörnurnar. Þema Met Gala í ár var ansi krefjandi og því miður voru alltof margar stjörnur skutu langt framhjá markinu þegar það kom að fatavali.

Við höfum tekið saman nokkur dress sem við vorum ekki alveg að fýla. 

Við spyrjum bara: Í hverju er Chrissy Teigen?Mynd/Getty
Við vitum ekki alveg hvað er í gangi með þennan kjól hjá Madonnu.Mynd/Getty
Amy Schumer skaut langt framhjá markinu með þessum kjól.Mynd/Getty
Elizabeth Banks hefði getað valdið flogakasti með þessum kjól sínum.Mynd/Getty
Sean Combs í furðulegri múnderingu.Mynd/Getty
Lena Dunham hefði alveg eins geta mætt með sængina sína utan um sig.Mynd/Getty
Nicki Minaj í H&M. Við vildum óska þess að hún hefði valið annan kjól og aðra skó.Mynd/Getty
Sofia Richie í illa sniðnum kjól, því miður.Mynd/Getty





×