Bíó og sjónvarp

Þetta er ástæðan fyrir því að þú kannast svona sjúklega mikið við Clay úr 13 Reason Why

Stefán Árni Pálsson skrifar
Clay Jensen er einn af aðal karakterunum í þáttunum.
Clay Jensen er einn af aðal karakterunum í þáttunum.
Clay Jensen er einn af aðal karakterunum í þáttunum vinsælu 13 reason Why sem eru að slá í gegn um heim allan.

Netflix-serían 13 Reasons Why hefur notið mikilla vinsælda síðan hún var frumsýnd þann 31. mars síðastliðinn. Hún hefur þó líka komið af stað umræðu um viðkvæm málefni á borð við þunglyndi, kynferðisofbeldi og sjálfsmorð.

Þáttaröðin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir rithöfundinn Jay Asher og er sögð út frá sjónarhorni unglingsstúlku sem fremur sjálfsmorð. Hún tekur svo ástæðurnar að baki þeirri gjörð upp á segulband, sem skólafélagar hennar hlusta á.

Dylan Minnette fer með hlutverk Clay Jensen í þáttunum en hann hefur heldur betur komið víða við. Minnetta er fæddur þann 29. desember árið 1996. Aðdáendur þáttana könnuðust strax við andlitið á kauða og kannski skiljanlegt því hann hefur verið á skjánum um heim allan síðan árið 2005 þegar hann birtist í Two and a Half Men aðeins tíu ára að aldri.

Síðastliðin 12 ár hefur Minnette komið við sögu í eftirfarandi sjónvarpsefni;

MADtv

Prison Break (lék ungan Michael Scofield)

Grey's Anatomy 

Rules of Engagement

The Mentalist 

Supernatural

Lost 

Saving Grace 

Medium

Lie to Me

Law & Order: Special Victims Unit 

Prisoners 

Scandal

13 Reasons Why

Hér má sjá listann í heild sinni á vefsíðu imdb.com


Tengdar fréttir

Geð­heil­brigðis­sam­tök vara við 13 Rea­sons Why

Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda á Netflix undanfarin misseri. Headspace, áströlsk samtök um geðheilbrigði, hafa varað við þáttaröðinni á grundvelli þess að umfjöllunarefnið sé "hættulegt.“ Leikkona úr Stranger Things, annarri vinsælli Netflix-seríu, er á sama máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×