Viðskipti innlent

Ólafur Ólafsson óskaði formlega eftir fundi á föstudaginn

Haraldur Guðmundsson skrifar
Ólafur Ólafsson, stærsti eigandi Samskipa, mun að öllum líkindum mæta fyrir nefndina síðar í mánuðinum.
Ólafur Ólafsson, stærsti eigandi Samskipa, mun að öllum líkindum mæta fyrir nefndina síðar í mánuðinum. vísir/vilhelm
Ólafur Ólafsson, athafnamaður og stærsti eigandi Samskipa, hefur sent stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis formlegt erindi og óskað eftir að fá að mæta á fund hennar. Erindið barst nefndinni á föstudag og verður tekið fyrir á fundi hennar fyrir hádegi í dag.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og varaformaður nefndarinnar, sem stýrir umfjöllun hennar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðingu Búnaðarbankans, vill ekki upplýsa um efni erindisins annað en að þar megi finna rökstuðning Ólafs fyrir beiðninni.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.vísir/anton brink
„Við munum ræða málsmeðferðina í dag. Við erum að skipuleggja hana en þetta er viðamikið mál og ekki einungis Bún­aðar­bankaskýrslan heldur einnig mat á því hvort ráðast eigi í frekari vinnu og gögn sem varða einkavæðingu annarra banka,“ segir Jón Steindór.

Ólafur sendi frá sér yfirlýsingu þann 12. apríl þar sem hann óskaði eftir að fá að mæta á fund nefndarinnar. Rannsóknarnefnd Alþingis kynnti í lok mars niðurstöðu sína um þátttöku þýska bankans Hauck & Aufhäuser í einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003 en hún var sú að þýski bankinn hefði í raun aldrei verið þar fjárfestir. Í yfirlýsingu sinni sagðist Ólafur vilja varpa ljósi á atburðarásina og svara spurningum.

„Við munum skila skýrslu um skýrsluna um Búnaðarbankann og skila einhvers konar greinargerð um framhaldið að öðru leyti.“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður nefndarinnar, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður sama flokks og 2. varaformaður, sögðu í samtali við Fréttablaðið síðasta fimmtudag það geta reynst óskynsamlegt að hafa fundinn opinn fyrir fjölmiðlum og almenningi.

„Ég er ekki búinn að gera það endan­lega upp við mig og það hangir saman við hvernig nefndin tekur á málinu. Það er ekki komin ákvörðun um það,“ svarar Jón Steindór.


Tengdar fréttir

Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu

Kjartan Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson segja flest gögn um fléttuna á bakvið kaupin á Búnaðarbanka þegar hafa legið fyrir hjá helstu eftirlitsstofnunum ríkisins. Aðeins hafi átt eftir að draga þau saman og rekja punktana, frá afland

Þræðirnir liggja til Sambandsins

Endalok og uppgjör SÍS leiddu til þess að Ólafur Ólafsson var ráðinn forstjóri Samskipa. Fyrirtæki Sambandsins eru nú enn og aftur í sviðsljósinu í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×