Lífið

Falleg íslensk heimili: „Eins og að ganga inn í franska verslun“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Smekkleg eign.
Smekkleg eign.
Við Langholt 5 á Akureyri er að finna þetta fallega heimili sem er í eigu Svönu Rúnar Símonardóttur og fjölskyldu. Fjölskyldan hefur búið í eigninni í rúmlega eitt og hálft ár.  Húsið er um 180 fermetrar. Húsið var byggt árið 1962. 

Farið var í heimsókn til Akureyrar í síðasta þætti af Fallegum íslenskum heimilum og skoðað þetta fallega hús.

Í Fallegum íslenskum heimilum fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×