Bílar

Sala jeppa, jepplinga og pallbíla 56% nýrra bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Bílar eins og Nissan Qashqai eru mjög vinsælir þessa dagana.
Bílar eins og Nissan Qashqai eru mjög vinsælir þessa dagana.
Kauphegðun fólks á bílum hér á landi er keimlík öðrum mörkuðum nú hvað góða sölu í jeppum, jepplingum og pallbílum varðar. Þegar skoðaðar er sölutölur fyrir fyrstu 4 mánuði ársins og aðeins taldir til seldir bílar til einstaklinga og fyrirtækja sést að 56,3% nýrra bíla eru af slíkum gerðum. Ef sala til bílaleigubíla er talin með er talan 48%.

Í heildina keyptu landsmenn 13% fleiri nýja bíla fyrstu fjóra mánuði ársins heldur en á sama tímabili árið 2016. Á sama tíma og greinileg aukning er á sölu fjórhjóladrifinna bíla og þá sér í lagi á jeppum, jepplingum og pallbílum hefur dregið úr sölu á hefðbundnum, meðalstórum fólksbílum (C segment).

Þegar skoðaðar eru sölutölur frá einstaka umboðum sést að BL er langstærsta umboðið með 2.148 bíla sölu og 29,2% hlutdeild. Næst á eftir kemur Toyota með 1.325 selda bíla og 18,0% hlutdeild, svo Brimborg með 1.186 og 16,1% hlutdeild, þá Askja með 1.004 og 13,6% hlutdeild og Hekla með 854 og 11,6% hlutdeild.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×