Lífið

Bein útsending: Spjallað við Siggu Kling á Facebook Live

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sigga er sú flinkasta í því að spá fyrir lesendum, enda fær hún fleiri hundruði fyrirspurna í hverri útsendingu hér á Vísi.
Sigga er sú flinkasta í því að spá fyrir lesendum, enda fær hún fleiri hundruði fyrirspurna í hverri útsendingu hér á Vísi.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir maí birtust í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fór af stað með skemmtilega nýjung fyrir nokkrum mánuðum en þá var hægt að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live. Þetta verður að sjálfsögðu á dagskrá á ný í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Útsendingin hefst klukkan 15. 

Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn. Spákonan biðlar til lesenda Vísis að koma með einlægar spurningar sem koma frá hjartanu. Ekki sé nóg að senda aðeins fæðingardaginn. Með Sigríði til halds og trausts í útsendingunni verður Hulda Hólmkelsdóttir, fréttamaður á Vísi.

Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan en til að taka þátt þarf að skrifa í þráðinn við útsendinguna á Facebook-síðu Vísis.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×