Menning

Mér fannst spennandi að taka skrefið til fulls

Helga við verkið Lífsmynstur sem er titilverk sýningarinnar.
Helga við verkið Lífsmynstur sem er titilverk sýningarinnar. Vísir/Anton Brink
Helga Arnalds opnar sína fyrstu einkasýningu á myndlist í SÍM salnum í Hafnarstræti 16 klukkan 17 í dag. Hún nefnist Lífsmynstur og þar er að finna akrílmálverk, blekteikningar og mónóþrykk. Helga er þekkt fyrir sýningar eigin leikhúss sem nefnist Tíu fingur en hún útskrifaðist úr myndlist frá Listaháskólanum árið 2008.

Nú hefur Helga búið í Danmörku í eitt og hálft ár, nánar tiltekið í Árósum og segir það dásamlegt. „Maðurinn minn fór í tímabundið verkefni í Árósum og mér fannst það kærkomið tækifæri til að skipta aðeins um gír, það er aðeins annað tempó þar, fjölskylduvænna tempó,“ segir Helga, sem kveðst eiga átta ára dóttur og fjórtán ára son. „Svo skellti ég mér í frábæran skóla í Árósum. Bjóst við að fara þar í hobbímyndlist en þar eru rosa góðir kennarar og áherslur aðeins öðruvísi en hér heima. Danir eru líka svo góðir að tjá sig og spjalla um hlutina.“

Helga á langan og farsælan feril sem leikhúslistakona. Hún fékk Grímuna árið 2015 fyrir sýninguna Lífið sem var valin besta barnaleiksýning ársins og Sproti ársins. Sýning hennar Skrímslið litla systir mín var valin barnasýning ársins 2012. Hún hlaut einnig Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2012.

Í leikhúsinu voru sýningar Helgu á mörkum leiklistar og myndlistar og þar sagði hún sögur með fáum orðum en í Árósum kveðst hún í byrjun hafa einbeitt sér að myndlistinni. „Mér fannst spennandi að taka skrefið til fulls og á þessari sýningu eru bara málverk og teikningar.“



Ekki kveðst Helga þó hafa lagt spunavinnu með efni á hilluna því úti sé hún með verk sem líta megi á sem framhald af leikhúsvinnunni. „Þar fer ég meira út í gjörninga en það er ekkert sem ég hef sýnt enn opinberlega.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×