Bíó og sjónvarp

Svakaleg fyrsta stikla úr nýrri íslenskri hrollvekju

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björn Stefánsson fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni.
Björn Stefánsson fer með eitt aðalhlutverkið í myndinni.
Þann 27. október næstkomandi verður ný íslensk kvikmynd frumsýnd en hún ber heitið Rökkur. Vísir frumsýnir nú fyrstu stiklu myndarinnar en hana má sjá í spilaranum hér neðst í fréttinni.

Um er að ræða dramatíska hrollvekju um dáið ástarsamband en með aðalhlutverk fara Björn Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Guðmundur Ólafsson.

Leikstjóri og handritshöfundur er Erlingur Óttar Thoroddsen. Framleiðendur eru Búi Baldvinsson og Baldvin Kári Sveinbjörnsson.

Söguþráðurinn er á þann veg að nokkrum mánuðum eftir að þeir hættu saman fær Gunnar skringilegt símtal frá fyrrverandi kærastanum sínum, Einari.

Hann finnur Einar í sumarbústað undir jökli, þar sem þeir takast á við fortíð sína - og þar sem andi kulnaðs sambands þeirra svífur yfir vötnum.

Rökkur var heimsfrumsýnd í vetur á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg og var þar lokamynd hátíðarinnar en verður frumsýnd hér heima  þann 27. október eins og áður segir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×