Tónlist

Herra Hnetusmjör og Birnir með hrikalega gott freestyle

Tinni Sveinsson skrifar
Útvarpsþátturinn Kronik hefur á skömmum tíma orðið algjörlega ómissandi hjá öllum sem hafa áhuga á íslenskri rapptónlist. Í hverri viku mæta íslenskir rapparar í hljóðverið á X-inu og ýmist frumflytja ný lög eða taka þau í beinni.

Annar fastur liður í þættinum er þegar umsjónarmenn þáttarins, þeir DJ Rampage og DJ B-Ruff, setja takt undir nálina og rappararnir spreyta sig á því að rappa algjörlega óundirbúinn texta í freestyle.

Ekki eru allir meistarar í því faginu en það er óhætt að segja að félagarnir Herra Hnetusmjör og Birnir séu með þeim betri. Þeir spreyttu sig þegar Kronik var nýlega tekinn upp í Smash í Kringlunni, eins og sjá má á upptökunni hér að ofan.

Nýir listamenn fá einnig að spreyta sig í Kronik eins og á dögunum þegar hinn ungi Þorri mætti með glænýtt lag, Klink. Upptöku af því þegar hann frumflutti lagið má sjá hér að ofan.

Á morgun er síðan von á neglu í Kronik. Þá mæta bræðurnir í Úlfur Úlfur í þáttinn og kynna nýju plötuna sína, Hefnið okkar. Þátturinn er á dagskrá X-ins á laugardögum klukkan 17 en einnig er hægt að hlusta á hann í vefspilaranum hér á Vísi.

Þá minnum við einnig á að upptökur af þættinum má nálgast á útvarpssíðu Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×