Körfubolti

Maciej samdi við uppeldisfélagið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maciej handsalar samninginn við Friðrik Ragnarsson, formann körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.
Maciej handsalar samninginn við Friðrik Ragnarsson, formann körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. mynd/njarðvík
Körfuknattleiksmaðurinn Maciej Baginski er kominn heim og búinn að semja við Njarðvík.

Hann lék með Þór frá Þorlákshöfn síðasta vetur en ákvað að koma aftur heim og skrifa undir tveggja ára samning.

Maciej var með 14,9 stig og 4,1 frákast að meðaltali í leik með Þór á síðustu leiktíð.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur heim í Njarðvík. Tími minn hjá Þór var lærdómsríkur en Njarðvík er mitt uppeldisfélag og ég vil fyrir alla muni taka þátt í því að færa félagið í fremstu röð á nýjan leik,“ sagði Maciej við heimasíðu Njarðvíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×