Fótbolti

Stórsigrar hjá Fjölni og HK/Víking

HK/Víkingur komst í dag áfram í Borgunarbikar kvenna.
HK/Víkingur komst í dag áfram í Borgunarbikar kvenna. vísir/anton
Fjölnir vann stórsigur, 6-0, á liði Hvíta Riddarans í Borgunarbikar kvenna og er komið í næstu umferð. Mörk Fjölnis í leiknum skoruðu þær Lára Marý Lárusdóttir, Ásta Sigrún Friðriksdóttir, Rósa Pálsdóttir (2), Lilja Nótt Lárusdóttir og Vala Kristín Theódórsdóttir.

HK/Víkingur vann sömuleiðis 6-0 þegar Álftanes kom í heimsókn. Laufey Elísa Hlynsdóttir skoraði þrennu, Milena Pesic skoraði tvö mörk og Karólína Jack eitt.

Þá vann ÍR 2-1 sigur á Gróttu á Seltjarnanesi og Þróttur R. vann 1-0 sigur á Víkingi í Ólafsvík með marki Sóleyjar Maríu Steinarsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×