Glamour

Emma Watson sigraði fyrstu kynlausu MTV verðlaunin

Ritstjórn skrifar
Emma Watson var ánægð með verðlaunin í gær.
Emma Watson var ánægð með verðlaunin í gær. Mynd/Getty
Í gær fóru fram kvikmyndaverðlaun MTV. Þar voru í fyrsta sinn veitt verðlaun í kynlausum flokkum í stað þess að vera með sér flokka fyrir konur og karla. Emma Watson sigraði í flokkinum "Big-screen actor accolade". Í flokkinum keppti hún á móti James McAvoy, Hugh Jackman og Daniel Kaluuya. 

Emma sagði í þakkarræðu sinni að ákvörðun MTV að vera með kynlausa flokka væri mikilvægt skref í rétta átt að jafnrétti í kvikmyndaheiminum. 

Ungstirnið Millie Bobby Brown sigraði einnig í sínum flokki, besti leikari/leikkona í sjónvarpsþætti. 

Það verður forvitnilegt að sjá hvort að fleiri verðlaunahátíðir muni taka upp þetta nýja kerfi í framtíðinni. 






×