Körfubolti

Golden State Warriors sópaði Utah Jazz í sumarfrí

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry gat brosað breitt eftir leikinn í nótt.
Stephen Curry gat brosað breitt eftir leikinn í nótt. Vísir/AP
Golden State Warriors vann í nótt fjórða sigurinn í röð á móti Utah Jazz í undanúrslitum Vesturdeildar NBA og er því komið áfram í úrslitaeinvígi Vesturstrandarinnar.

Golden State Warriors vann 121-95 í þessum fjórða leik sem fór fram á heimavelli Utah Jazz. Warriors hafði unnið hina þrjá leikina með 12 stigum (106-94), 11 stigum (115-104) og 11 stigum (102-91).



Bæði Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers, liðin sem mæst í úrslitaeinvíginu um NBA-titilinn siðustu tvö ár, hafa þar með bæði unnið fyrstu átta leiki sína í úrslitakeppninni í ár.

Stephen Curry var stigahæstur hjá með 30 stig auk þess að taka 5 fráköst og gefa 7 stoðsendingar. Liðsfélagi hans var hinsvegar með þrennu en Draymond Green skoraði 17 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.



„Við erum mest hrifnir af því að við höfum alltaf náð að spila okkar körfubolta í þessari seríu. Þeir náðu aldrei að koma okkur úr okkar leik og slíkt vegur þungt í úrslitakeppninni,“ sagði Draymond Green eftir leikinn.

Klay Thompson skoraði 21 stig og Kevin Durant var með 18 stig. Allar fjórar stjörnurnar voru því með miðið í lagi í nótt og vörnin hélt auk þess sóknarmönnum Utah í aðeins 37 prósent skotnýtingu í leiknum.

„Við erum með besta varnarmanninn í deildinni. Okkar góði varnarleikur byrjar hjá honum,“ sagði Kevin Durant um Draymond Green eftir leikinn.



Golden State Warriors liðið bíður nú eftir því hvaða lið vinnur hitt undanúrslitaeinvígið en þar er staðan 2-2 hjá San Antonio Spurs og Houston Rockets. Það er því örugglega ennþá eftir tveir leikir í því einvígi.

„Þetta er í góðu lagi hjá okkur. Við erum að spila vel á báðum endum vallarins. Í kvöld fengum við tækifæri til að klára dæmið. Það tókst og okkur hlakkar til næstu umferðar,“ sagði Stephen Curry.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×