Sport

Bjarki sigraði Proctor öðru sinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki og félagar fagna eftir bardagann.
Bjarki og félagar fagna eftir bardagann. mynd/rúnar geirmundsson
Bjarki Thor Pálsson er enn ósigraður sem atvinnumaður í MMA.

Í gærkvöldi bar Bjarki sigurorð af Englendingnum Alan Proctor á Fightstar 9 bardagakvöldinu í Brentford Fountain Leisure Center íþróttahöllinni í London.

Þetta var önnur viðureign Bjarka og Proctors. Þeir mættust fyrst í desember 2016 en þá var Bjarka dæmdur sigur eftir að hafa fengið í sig ólöglegt hnéspark sem varð þess valdandi að hann rotaðist. Báðum bardagamönnum var það kappsmál að mætast aftur og útkljá málin.

Bjarki var með stjórn á bardaganum í gær nær allan tímann og var með talsverða yfirburði. Í annarri lotu dró til tíðinda og eftir að Bjarki hafði komið Procter í óþægilega stöðu í gólfinu og látið höggin dynja á honum stoppaði dómarinn bardagann. Bjarki hefur því unnið alla þrjá bardaga sína sem atvinnumaður.

„Þetta var erfiður bardagi. Við komum báðir vel undirbúnir og ég fann það að hann ætlaði að gefa allt í þetta. Ég var nokkuð viss fyrir bardagann um það að glíman mín myndi vera sterkasta vopnið á móti honum og þess vegna sótti ég fast í að ná taki á honum og glíma. Það reyndist rétt og á endanum þá var það í gólfinu sem bardaginn vannst,“ er haft eftir Bjarka í fréttatilkynningu.

„Ég er ótrúlega glaður. Það vó þungt á mér að koma þessum bardaga út úr systeminu. Þó svo að mér hafi verið dæmdur sigur í seinasta bardaga þá var mér mikið í mun að klára þetta á mínum verðleikum. Og ég tel mig hafa gert það.“

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá bardaganum sem Rúnar Geirmundsson tók.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×