Fótbolti

Annað tap Guðbjargar og Hallberu í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hallbera lék allan leikinn fyrir Djurgården.
Hallbera lék allan leikinn fyrir Djurgården. vísir/anton
Íslendingaliðið Djurgården tapaði sínum öðrum leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Djurgården laut þá í lægra haldi fyrir Linköpings, 2-1.

Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð í marki Djurgården og Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar.

Djurgården er í 9. sæti deildarinnar með þrjú stig.

Í sænsku karladeildinni gerðu AIK og GIF Sundsvall markalaust jafntefli.

Kristinn Freyr Sigurðsson og Kristinn Steindórsson voru báðir í byrjunarliði Sundsvall en Haukur Heiðar Hauksson lék ekki með AIK í dag.

AIK er í 5. sæti deildarinnar með átta stig og Sundsvall í því þrettánda með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×