Innlent

Fjórir teknir fyrir ölvun við akstur

Atli Ísleifsson skrifar
Umræddir ökumenn voru stöðvaðir á Kringlumýrarbraut, Garðabæ, Nýbýlavegi í Kópavogi og í Ártúnsbrekku.
Umræddir ökumenn voru stöðvaðir á Kringlumýrarbraut, Garðabæ, Nýbýlavegi í Kópavogi og í Ártúnsbrekku. Vísir/Eyþór
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og í nótt.

Í dagbók lögreglu kemur fram að umræddir ökumenn hafi verið stöðvaðir á Kringlumýrarbraut, Garðabæ, Nýbýlavegi í Kópavogi og í Ártúnsbrekku.

Þá hafði lögregla afskipti af konu sem var ofurölvi á Lindargötu skömmu fyrir klukkan hálf tvö í nótt. Segir að hún hafi verið vistuð í fangageymslu lögreglu meðan ástand hennar batnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×