Formúla 1

Bílskúrinn: Ferrari slær frá sér í Barein

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel var að vonum kátur eftir kappaksturinn í Barein.
Sebastian Vettel var að vonum kátur eftir kappaksturinn í Barein. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari tók forystu í heimsmeistarakeppni ökumanna með því að vinna þriðju keppni tímabilsins sem fram fór í Barein síðustu helgi.

Hvernig vann Vettel, hverju klúðraði Valtteri Bottas og hver er munurinn á Mercedes og Ferrari bílunum? Þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Vettel tók létt dansspor á verðlaunapallinum.Vísir/Getty
Hvernig vann Vettel?

Sebastian Vettel ræsti þriðji af stað en var fljótur að stela öðru sætinu af Lewis Hamilton sem átti slaka refsingu á Mercedes bílnum.

Vettel tók svo þjónustuhlé og fékk ofur-mjúk dekk undir, hann nýtti þau til að setja afar góðan brautartíma, þangað til öryggisbíllinn var kallaður út. Þá hrúgaðist strollan inn á þjónustusvæðið en Vettel hélt áfram. Hann kom svo út fyrir framan alla halarófuna og var raunar aldrei ógnað eftir það og virtist eiga svör við ógnum Hamilton.

Valtteri Bottas var allt annað en kátur með sinn skerf í þriðja sætinu.Vísir/Getty
Hverju klúðraði Bottas?

Bottas náði í sinn fyrsta ráspól í Formúlu 1 á laugardaginn. Hann ræsti fremstur af stað og hélt forystunni fram að því að öryggisbíllinn kom út. Bottas var samt greinilega hægari en liðsfélagi hans, Hamilton.

Eftir keppnina sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes að hár loftþrýstingur í afturdekkjum hefði heft för Bottas.

Finninn var svo vinsamlegast beðinn um að hleypa Hamilton fram úr sér þegar Bretinn hóf atlögu sína að Vettel. Hann gerði það sómasamlega og hélt svo sínu striki. Undir lok keppninnar þurfti Bottas svo að bregðast við áhlaupi Kimi Raikkonen á Ferrari. Laugardagurinn var til lukku fyrir Bottas í Barein en sunnudagurinn svo sannarlega ekki til sælu. Einhver mæða hefur svo eflaust enn hrjáð hann á mánudag.

Vettel ógnar forystu Bottas á brautinni í Barein.Vísiri/Getty
Mercedes og Ferrari, hver er munurinn?

Mercedes bíllinn hefur verið á ráspól í öllum þremur keppnum tímabilsins. Svo virðist sem Ferrari bíllinn ráði ekki við hraða Mercedes bílsins á einum hring.

Hins vegar er annað uppi á teningnum þegar í keppnina er komið. Ferrari bílarnir hafa meiri meðalhraða í keppninni og þeim virðist ganga betur að halda stöðugum hraða.

Lykillinn er að öllum líkindum fólginn í því að Ferrari bíllinn fer betur með dekkin sín en Mercedes bíllinn gerir. Það má því búast áfram við því að Mercedes ræsi af ráspól en Ferrari ógni þeim svo í keppninni.

Segio Perez er herra stöðugur og átti frábæra keppni í Barein.Vísir/Getty
Ökumaður keppninnar

Sergio Perez á Force India fær heiðurinn að þessu sinni. Perez ræsti af stað 18. en kom í mark í sjöunda sæti. Það sem meira er, þetta var 13. keppnin í röð þar sem Perez nær í stig. Hann er afar stöðugur ökumaður.

Perez á afar stóran hluta í því að Force India Liðið situr í fjórða sæti heimsmeistarakeppni bílasmiða þegar þrjár keppnir eru búnar. Liðsfélagi Perez, Esteban Ocon hefur orðið tíundi í öllum þremur keppnum tímabilsins.

Stoffel Vandoorne sem tók ekki þátt í keppninni vegna bilunnar tókst að aka talsvert langt á æfingu á miðvikudag.Vísir/Getty
Æfingar í Barein eftir keppnina

Á þriðjudaginn og miðvikudaginn hafa farið fram æfingar í Barein. Liðin hafa notast við einn bíl í senn og reynt að aka eins mikið og mögulegt er til að finna lausn á þeim vandamálum sem komið hafa upp í upphafi tímabils.

Marcus Ericsson fór lengst á Sauber bílnum á þriðjudag þegar Hamilton var fljótastur. Antonio Giovinazzi ók Ferrari bílnum og var 0,6 sekúndum á eftir Hamilton.

Mesta athygli á miðvikudaginn vakti skyndilegur áreiðanleiki Honda vélarinnar í McLaren bílnum. Stoffel Vandoorne ók bílnum 81 hring og var fjórði, 0,8 sekúndum á eftir Bottas sem var fljótastur og fór lengst, 143 hringi.


Tengdar fréttir

Valtteri Bottas á ráspól í Barein

Valtteri Bottas á Mercedes náði í sinn fyrsta ráspól í Formúlu 1 í Barein í dag. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji á Ferrari.

Sebastian Vettel vann í Barein

Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark í Barein í dag. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×