Erlent

Setið fyrir lögregluþjónum í París

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Champs-Elysees.
Frá Champs-Elysees. Vísir/AFP
Minnst einn lögregluþjónn var skotinn til bana í umsátri í París nú í kvöld og tveir voru alvarlega særðir. Árásarmaðurinn var felldur, en hann er sagður hafa króað þann sem lést af þar sem hann ók eftir Champs-Elysees verslunargötunni.

Vitni sem ræddi við Reuters segir árásarmanninn hafa stigið út úr bíl og skotið á lögreglubílinn með Kalashnikov-riffli. Því næst hafi hann skotið á aðra lögregluþjóna á götunni. Skothríðin átti sér stað fyrir utan verslunina Mark and Spencer.

Einn ferðamaður er sagður hafa særst lítillega í árásinni.

Lögreglan sagði upprunalega að mögulega hefðu árásarmennirnir verið tveir. Nú segir hún útlit fyrir að hann hafi verið einn að verki og að árásarmaðurinn hafi verið kunnugur yfirvöldum.

Sky News segja þó að lögreglan hafi lýst eftir öðrum manni vegna árásarinnar.

Fjölmiðlar víða héldu því fram að annar lögregluþjónn hefði látið lífið, en innanríkisráðuneyti Frakklands segir það rangt. Báðir lögregluþjónarnir sem eru særðir, eru sagðir í alvarlegu ástandi.

Neyðarástandi var lýst yfir í Frakklandi árið 2015 og síðan þá hafa rúmlega 230 manns látið lífið í hryðjuverkaárásum.

Amaq, fréttaveita ISIS, hefur lýst yfir að árásin hafi verið framkvæmd af „hermanni“ samtakanna sem hafi heitið Abu Yusuf alBeljiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×