Handbolti

Patrekur: Kitlar í puttana að komast aftur út á gólf

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrekur á hliðarlínunni með Austurríki.
Patrekur á hliðarlínunni með Austurríki. vísir/getty
Handknattleiksþjálfarinn Patrekur Jóhannesson segir í samtali við Vísi að hann hafi hug á því að þjálfa aftur á Íslandi.

Hann yfirgaf Hauka fyrir tveim árum síðan til þess að einblína á starf sitt sem landsliðsþjálfari Austurríkis og einnig var hann í krefjandi námi. Nú eru breyttar forsendur og hann vill komast aftur á parketið.

„Það er ágætt að koma því strax á hreint að ég er ekki búinn að taka neina ákvörðun um hvað ég ætla að gera,“ segir Patrekur en hann er sterklega orðaður við Selfoss þessa dagana.

Selfoss er að leita hófana að „stærra nafni“ en Stefáni Árnasyni að því er Stefán sagði. Patrekur er eitt stærsta nafnið í íslenskum þjálfaraheimi.

„Ég hef heyrt í nokkrum liðum á Íslandi en ekkert formlega. Ég ætla annars ekkert að tjá mig sérstaklega um þau mál. Ég ætla að taka mér góðan tíma í að ákveða mig en ég viðurkenni alveg að mig kitlar í puttana að komast aftur út á gólf.“

Patti er alltaf líflegur.vísir/getty
Eins og áður segir er að Patrekur að klára nám og hefur hug á að samtvinna þjálfun og mastersritgerð.

„Ég er vonandi að klára mastersnám í íþróttaþjálfun og vísindum núna í sumar ef allt gengur upp. Ég á svo ritgerðina eftir. Þá hef ég verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að tengja það félagsþjálfun eða yngri flokka þjálfun. Eða eitthvað allt annað,“ segir Patrekur og bætir við að hann fái reglulega fyrirspurnir frá íslenskum og erlendum félögum.

„Staðan er einföld. Ég ætla að skoða mín mál í rólegheitum. Ég hef verið lítið út á gólfi síðustu mánuði. Stundum er mikið að vera með bæði félagslið og landslið en það gekk samt vel er ég var með Haukana. Við unnum fjóra titla á tveimur árum og ég náði HM og EM með Austurríki. Það getur vel farið svo að ég ákveði samt að fara bara í yngri flokka þjálfun núna. Svo gæti verið gaman að fara niður í neðrideildarlið. Það er fullt af pælingum í gangi hjá mér. Ég elska þessa íþrótt og vinnu.“


Tengdar fréttir

Patti á leið til Selfoss?

Samkvæmt heimildum Vísis þá hefur Patrekur Jóhannesson hug á því að taka við liði á Íslandi á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×