Viðskipti innlent

Svipmynd Markaðarins: Helmingur ársins fer í golfíþróttina

Sæunn Gísladóttir skrifar
Fyrsta starf Guðmundar Pálssonar var sem sendill hjá auglýsingastofunni Örkinni þegar hann var fjórtán ára.
Fyrsta starf Guðmundar Pálssonar var sem sendill hjá auglýsingastofunni Örkinni þegar hann var fjórtán ára. Vísir/Eyþór
Guðmundur H. Pálsson tók í byrjun árs við stöðu framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Pipars\TBWA. Hann er með BA í auglýsingafræði og hefur starfað í auglýsingabransanum í rúman áratug, en fyrsta starf hans var sem sendill hjá auglýsingastofunni Örkinni, aðeins fjórtán ára gamall. Hann segist vera í draumastarfinu en utan vinnunnar fer helmingur ársins í golfíþróttina.

Guðmundur er uppalinn í Breiðholtinu og byrjaði skólagönguna í Breiðholtsskóla, fór síðan í Seljaskóla og útskrifaðist úr Menntaskólanum við Sund árið 1990. Eftir það fór hann til Kaliforníu að læra í San Jose State University og útskrifaðist með BA í auglýsingafræði árið 1995.

14 ára sendill hjá auglýsingastofu

Fyrsta launaða starfið fékk hann þegar hann var 14 ára sem sendill hjá auglýsingastofunni Örkinni sem pabbi hans átti og rak. Hann vann þar með skóla á sumrin, fyrst sem sendill, síðan sem hönnuður og endaði sem tengill. Eftir námið í Bandaríkjunum kom hann til Íslands og hóf störf sem markaðsstjóri B&L. Hann var þar í tæp tvö ár og fór síðan yfir til IKEA sem markaðsstjóri og síðan bættist húsgagnadeildin við sem ábyrgðarsvið hans.

Árið 2003 hóf hann störf hjá Iceland Express sem svæðisstjóri yfir Íslandi. Árið 2005 færði hann sig svo yfir í auglýsingabransann og eftir mörg áhugaverð ár er hann nú framkvæmdastjóri Pipars\TBWA.

Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári?

Við á Pipar\TBWA höfum mikið verið að vinna fyrir ferðamannabransann og er það alltaf að aukast. Vegna starfsins fór ég gullna hringinn í febrúar og það það kom mér verulega á óvart hversu mikið af erlendum ferðamönnum er á þessum stöðum á þessum tíma, en þetta var eins og Menningarnótt í miðbænum. Maður upplifir ferðamenn aðallega í miðbænum, en það er öðruvísi að fara á Þingvelli, Gullfoss og Geysi og finna fyrir þessu. Að fara inn í mannþröngina á Þingvöllum á laugardagsmorgni í febrúar er eitthvað sem kom mér verulega á óvart.

Hvaða app notarðu mest?

Ég nota Flipboard mjög mikið. Þar er skemmtilega tekið saman allt það sem ég hef áhuga á, sett upp eins og fréttasíða fyrir hvern flokk. Hvort sem það er sportið eða allt það nýjasta sem er að gerast í auglýsingabransanum eða tæknimálum þá finn ég það í þessu appi. Síðan eru það þessi hefðbundnu öpp sem ég nota mikið, s.s. helstu úrslit í enska boltanum og ekki skal gleyma Fant­acy-appinu, en það er hörð keppni í vinnunni.

Hvað gerir þú í frístundum þínum?

Helmingur ársins fer í golfíþróttina. Ég reyni að stunda golf sem mest á sumrin og ef ég get lengi ég tímabilið með ferð til Flórída þar sem fjölskyldan á húsnæði. Það eru miklir golfarar í vinnunni minni en ásamt því eru gömlu handboltafélagarnir með vinagolfhóp. Upp á síðkastið hafa aðeins verið að bætast við fjallgöngur með fjölskyldunni, en það er eitthvað sem ég held að eigi eftir að aukast.

Hvernig heldur þú þér í formi?

Það hefur verið tekið í skorpum hjá mér að halda forminu og er ég búinn að prófa margar leiðir í því. Á tímabili var það CrossFit sem er ein skemmtilegasta leiðin til að komast í mjög gott form. Annars hafa útihlaup og tækjasalir verið mín leið síðustu misseri.

Hvernig tónlist hlustar þú á?

Börnin og konan eru alltaf að kynna nýja tónlist fyrir mér og er margt mjög gott. Ég enda samt alltaf sjálfur á að hlusta á gömlu rokkarana, svo sem Stones, Hendrix, Pink Floyd, Guns’n Roses o.fl. Einnig, ef ég vil róa þetta aðeins niður, þá hlusta ég á Clapton, Dylan og Johnny Cash. Það lítur út fyrir mikla veislu í þessu í sumar, en hingað eru að koma Foo Fighters og Red Hot Chilli Peppers sem ég er búinn að kaupa miða á.

Ertu í draumastarfinu þínu?

Að vinna við auglýsingar og markaðsmál er eitthvað sem ég hef mjög gaman af og hefur verið mín ástríða. Til þess að vera í þessu starfi og ílengjast þarf það að vera áhugamálið líka. Ég mæli ekki með því fyrir neinn að vera í starfi sem ekki er skemmtilegt. Það er gaman að vinna með skemmtilegu, skapandi fólki og takast á við áskoranir dagsins. Hjá mér er gaman í vinnunni og er ég því klárlega í draumastarfinu.


Tengdar fréttir

Svipmynd Markaðarins: Hugleiðir með appi og stundar jóga daglega

Helga Hlín Hákonardóttir, héraðsdómslögmaður með próf í verðbréfaviðskiptum og CrossFit þjálfari, hóf starfsferilinn á innlendum verðbréfamarkaði árið 1996 og starfaði næstu 17 ár á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum

Svipmynd Markaðarins: Forstjóri Gamma hlustar á Sinfó eða X-ið

Valdi­mar Ármann tók við sem for­stjóri GAMMA Capital Mana­ge­ment á Íslandi um síðustu mánaðamót. Valdi­mar gegndi áður starfi fram­kvæmda­stjóra sjóða hjá GAMMA og er meðal fyrstu starfs­manna fé­lags­ins. Valdimar situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×